HEIM
KRAFTLYFTINGAR
UM KRAFT
MÓT

MET

FÓLK

LINKAR

MYNDIR
 

SKRÁNING KEPPENDA Á ÍSLANDSMÓTIÐ 2010

Kraftlyftingafélög skrá keppendur sína til leiks á þar til gerðum eyðublöðum sem er að finna í hægra dálkinum.

Fylla þarf út fullt nafn, kennitölu og þyngdarflokk keppenda og nafn og kennitölu aðstoðarmanna og skila innan tiltekins skráningarfrests til ritara KRAFT eða til mótshaldara.

Líka þarf að koma fram hvort keppandinn ætlar að keppa í opnum flokki eða í aldurstengdum flokki. Tekið skal fram að öldungur eða unglingur sem keppir í opnum flokki getur samt sett Íslandsmet í sínum aldursflokki.

Æskilegt er að hvert félag bjóði fram sjálfboðaliða til aðstoðar við mótshald ef eftir því verður óskað.

Félagið ber ábyrgð á greiðslu keppnisgjalds til mótshaldara, hvort sem félagið borgar það af sínum sjóðum eða innheimtir frá keppendum.  

Þeir sem vilja keppa hafa samband við sitt félag sem fyrst til að  tryggja skráningu.

FÉLÖGIN

 

SKRÁNINGARBLAÐ

word
Best er að hægrismella á skjalið og vista síðan, þá er hægt að fylla út blaðið, vista aftur og senda í tölvupósti á netfang ritara.

 
Vefstjóri Gry Ek