HEIM
KRAFTLYFTINGAR
UM KRAFT
MÓT

MET

FÓLK

LINKAR

MYNDIR
 
 

Stigakeppni félaga

Stjórn Kraftlyftinganefndar ÍSÍ hefur ákveðið að efna til stigakeppnis félaga í kraftlyftingum 2010.

Öll aðildarfélög KRAFT eiga rétt á þátttöku.

Stig eru talin eftir hverri keppni og staðan birt á kraft.is jafnóðum.

Í lok ársins hlýtur stigahæsta liðið heiðursnafnbót og peningaverðlaun sem félagið má nota að eigin vild.

Eftirtalin mót gefa stig:
Íslandsmótið í bekkpressu
Íslandsmótið í kraftlyftingum – allir aldursflokkar
Íslandsmótið í réttstöðulyftu
Bikarmót KRAFT

Stigagjöfin reiknast svona:
1. sæti í flokki gefur 12 stig
2. sæti gefur 9 stig
3. sæti gefur 8 stig
4. sæti gefur 7 stig
5. sæti gefur 6 stig
6. sæti gefur 5 stig
7. sæti gefur 4 stig
8. sæti gefur 3 stig
9. sæti gefur 2 stig
10. sæti og neðar gefur 1 stig

6 efstu menn hvers liðs telja.
Þetta eru sömu reglur og IPF nota á sínum mótum.

Eftir árið verður framkvæmd keppninnar endurskoðuð í samráði við félögin.
 

 


 
 

STIGAKEPPNI
- - - - - - -

REGLUR

STAÐA

 
Vefstjóri Gry Ek