HEIM
KRAFTLYFTINGAR
UM KRAFT
MÓT

MET

FÓLK

LINKAR

MYNDIR
 

 

Í dag stunda menn kraftlyftingar innan nokkurra ólíkra samtaka á Íslandi. Þeir sem standa utan við eiga erfitt með að skilja hvers vegna þarf mörg sambönd í ekki fjölmennari íþróttagrein.
Það er von að menn spyrji.

ÞETTA ER Kraftlyftinganefnd ÍSÍ - KRAFT

  •   KRAFT er samband héraðssambanda og íþróttasambanda þeirra félaga innan ÍSÍ sem iðka og keppa í kraftlyftingum.
     

  •   KRAFT er eini aðilinn sem gefur kraftlyftingamönnum tækifæri til að stunda sína íþrótt innan ÍSÍ. KRAFT starfar þar á sömu forsendum og sérsambönd. Allt skipulag, stjórnsýsla og peningaumsýsla svo og lyfjamál eru uppi á borðinu og eiga að vera öllum aðgengileg.

 ·         KRAFT er eini aðilinn sem getur opnað sambandsaðilum sínum og meðlimum þeirra aðgang að tilboðum, opinberum styrkjum, námskeiðum og annarri þjónustu ÍSÍ.

 ·         KRAFT er eini aðilinn sem hefur skipulagða starfsemi í öllum landshlutum. KRAFT vinnur í nánu samstarfi við héraðssambönd og íþróttabandalög að uppbyggingu og eflingu íþróttarinnar á viðkomandi landssvæði.
Í janúar 2010 eru kraftlyftingar stundaðar í þessum félögum:
Kraftlyftingadeild Breiðabliks, Kópavogi
Kraftlyftingadeild Ármanns, Reykjavik
Kraftlyftingafélag Akureyrar,
Massi, kraftlyftingadeild UMFN
Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar
Kraftlyftingafélag Akraness
Kraftlyftingadeild Sindra, Hornafirði
Kraftlyftingadeild UMF Selfoss.
 
 

 ·         Allir félagsmenn í aðildarfélögum KRAFT gangast undir alþjóða lyfjareglurnar og tryggja með því að lög og reglur ÍSÍ svo og IPF (The International Powerlifting Federation) og EPF (The European Powerlifting Federation) í lyfjaeftirlitsmálum séu virtar og í heiðri hafðar. KRAFT er fulltrúi Íslands gagnvart IPF. Sérsambönd 102 landa eiga aðild að IPF.

 ·         Félagsmenn aðildarfélaga KRAFT eru þeir einu sem geta keppt fyrir hönd Íslands á alþjóðamótum á vegum IPF, EPF og NPF, t.d. á World Games sem er alþjóðamót einu stigi frá Ólýmpíuleikunum sjálfum.
 

KRAFT vinnur að eflingu kraftlyftinga bæði sem keppnisíþrótt og heilsurækt. Allir eru velkomnir í hópinn, konur og karlar, gamlir og ungir.
Í KRAFT finna menn skemmtilegan félagskap þeirra sem vilja vera sterkir á heilbrigðan hátt -  án lyfja.

 

 
 

STIGAKEPPNI
- - - - - - -

REGLUR

STAÐA


SKRÁNING Á MÓT

Ársskýrslur

Saga kraftlyftinga 1965-2002

 

 

 

 

 
Vefstjóri Gry Ek