HEIM
KRAFTLYFTINGAR
UM KRAFT
MÓT

MET

FÓLK

LINKAR

MYNDIR
 
 

- Eldri Fréttir -


2009 - 2008 - 2007 - 2006

30.desember 2009
GAMLÁRSMÓTIÐ
Á gamlársdag 31.desember fer fram bekkpressumót KFA. 18 keppendur eru skráðir til leiks. Allar upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu KFA.

23.desember 2009
JÓLAKVEÐJA
Stjórnin sendir öllum félögum og stuðningsmönnum bestu óskir um gleðilega og friðsæla jólahátíð í návist vina og fjölskyldu.
Megið þið hvílast vel, nærast vel og safna kröftum fyrir góðar bætingar á næsta kraftlyftingaári.
 

22.desember 2009
ÁRMENNINGAR HEIÐRA KRAFTLYFTINGAMENN
Í afmælishófi Ármanns þann 13.des. síðastliðinn, voru afhentar viðurkenningar til þeirra keppenda, sem tilnefndir voru sem kraftlyftingamaður ársins 2009 og efnilegasti kraftlyftingamaðurinn.
Lesa meira

22.desember 2009
GAMLÁRSMÓT
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á gamlársmót KFA í bekkpressu. Mótið fer fram 31.desember, og nánari upplýsingar birtast á heimasíðu KFA.
Skráning Keppendur

19.desember 2009
KRAFTLYFTINGAKONA OG KRAFTLYFTINGAMAÐUR ÁRSINS 2009.
Stjórn Kraftlyftinganefndar ÍSÍ ákvað á fundi sínum 15.desember sl. að sæma þeim Maríu Guðsteinsdóttur, Ármanni, og Auðuni Jónssyni, Breiðablik,  nafnbótina kraftlyftingakona og -maður ársins 2009. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn á árinu. Nánar

17.desember 2009
NÝJAR SKRÁNINGARREGLUR
Á fundi stjórnar KRAFT 15.desember sl. var ákveðið að taka upp nýtt skráningarfyrirkomulag á mótum. F.o.m. 1.janúar 2010 skrá kraftlyftingafélögin keppendur sína til leiks. Það þýðir að keppendur skrá sig ekki lengur sem einstaklingar gegnum kraft.is eins og hingað til, heldur senda félögin inn skráningarlista með sínum keppendum og borga þátttökugjald fyrir allan hópinn í einu.

Um leið skrá félögin aðstoðarmenn keppenda. Keppendur og aðstoðarmenn verða þannig á ábyrgð félaga sinna, og enginn á aðgang að keppnissvæði sem ekki er á þessum lista.
Fyrsta mótið sem verður haldið samkvæmt þessum reglum er væntanlega íslandsmótið í bekkpressu í lok janúar. Þessar reglur gilda um öll mót á vegum KRAFT önnur en innanfélagsmót þar sem eingöngu keppa félagar eins liðs.

Nánari upplýsingar um þetta verða send félögunum svo þau hafa frest til að gera nauðsynlegan undirbúning til að geta starfað eftir þessu fyrirkomulagi  eftir áramót.

15.desember 2009
ÚTHLUTUN ÚR AFREKSSJÓÐI ÍSÍ
Framkvæmdanefnd ÍSÍ ákvað á fundi sínum 19. nóvember að styrkja Kraftlyftinganefndinni um 200.000 krónur vegna undirbúnings og þátttöku í HM á Indlandi. Styrkurinn er vel þeginn og kemur á móti miklum útlögðum kostnaði.

25.nóvember 2009
ÁRAMÓTAMÓT
Það er tæplega hægt að enda árinu á betra hátt en með þátttöku í bekkpressumóti. Þetta hafa Akureyringar skilið fyrir löngu og bjóða upp á gamlársmót í bekkpressu í ár eins og undanfarin ár. Mótið fer fram 31. desember, er opið bekkpressumót og skráning fer fram HÉR. Nánari upplýsingar þegar nær dregur. 

24.nóvember 2009
SKAGAMENN BÆTAST Í HÓPINN

Stjórn félagsins ásamt fulltrúum Kraft og formanni ÍA
Stofnfundur Kraftlyftingafélags Akraness var haldinn í íþróttamiðstöðinni á Akranesi í dag. Stofnfélagar voru yfir 40 karlar og konur. Félagið hefur þegar sótt um aðild að ÍA og Kraftlyftinganefnd ÍSÍ og fyrsti formaður var kosinn Hermann Hermansson. Framundan er vinna við að byggja upp öflugt félag og góða aðstöðu til æfinga. Stjórn KRAFT óskar Skagamönnum til hamingju og velkomin í hópinn. Það verður gaman að fylgjast með þeirra keppendum á næstu mótum.

22.nóvember 2009
MYNDIR FRÁ RÉTTSTÖÐUMÓTINU
Sunna Hlín

21.nóvember 2009
MYNDIR FRÁ RÉTTSTÖÐUMÓTINU
Klaus Jensen

21.nóvember 2009
MARÍA OG HALLDÓR ÍSLANDSMEISTARAR
Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu fór fram á Selfossi í dag. María Guðsteinsdóttir, Ármanni, sigraði örugglega í kvennaflokki með 170,0 kg í 75,0 kg flokki. Halldór Eyþórsson, Breiðablik, varð Íslandsmeistari karla með 240,0 kg í 82,5 kg flokki. Guðmundur Erlingsson, Massi, gerði harða atlögu að titlinum. Hann lyfti 290 kg í +125 kg flokki, en rétt missti af 300 kg í síðustu tilraun og lenti í öðru sæti. Í þriðja sæti lenti svo Júlían Jóhannsson, Ármanni, með 270 kg í 110,0 kg flokki drengja.
16 réttstöðumótsmet voru sett á mótinu og hafa þau verið uppfærð. Við óskum öllum sigurvegurum og methöfum til hamingju með góðan árangur.
ÚRSLIT - STIGARÖÐ

14.nóvember 2009
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ Í RÉTTSTÖÐULYFTU
fer fram í umsjón UMF Selfoss 21. nóvember  nk. Metþáttaka er á mótinu, en 8 konur og 25 karlar eru skráðir til leiks. UMFN Massi og Breiðablik mæta með 11 keppendur hvort um sig og Ármann með 10, en heimamenn verða að setja traust sitt á Daníel Geir sem er eini keppandinn frá Selfossi. það stefnir augljóslega í spennandi og skemmtilegt mót.
KEPPENDUR

14. nóvember
HM-LIÐIÐ KOMIÐ HEIM


Auðunn Jónsson kom heim frá HM á Indlandi með silfurverðlaun i réttstöðu í farteskinu. Sigurjón Pétursson og Guðjón Hafliðason, formaður og varaformaður KRAFT, tóku á móti honum og Vigfúsi Kröyer aðstoðarmanni við komuna til landsins.

14. nóvember
FRÉTTABRÉF KRAFTLYFTINGASAMBANDS EVRÓPU - EPF

7.nóvember 2009
THELMA OG ÁRNI FREYR BIKARMEISTARAR.

Thelma Ólafsdóttir, Breiðablik og Árni Freyr Stefánsson, Breiðablik, urðu í dag bikarmeistarar KRAFT 2009. Thelma keppti í - 75,0 kg flokki og setti unglingamet í öllum greinum. Hún lyfti samtals 350 kg. Árni Freyr keppti í +125,0 kg flokki og lyfti samtals 775 kg.
Hvorki meira né minna en 42 íslandsmet voru sett í hinum ýmsum aldursflokkum. Það er greinilegt að margir eru að bæta sig og ættu skilið að fá hvatningarverðlaun, en að þessu sinnu fóru þau til Pawel Lul, Breiðabliki, sem hefur bætt sig um 72,5 kg síðan á Íslandsmótinu í apríl.
Heildarúrslit - Stigaröð

MYNDIR FRÁ BIKARMÓTI

 7.nóvember 2009
AUÐUNN Í 5. SÆTI, SILFUR Í RÉTTSTÖÐU.
©Maria Gudsteinsdottir:Auðunn JónssonAuðunn Jónsson lauk í dag keppni í +125,0 kg flokki á HM á Indlandi. Hann lenti í 5. sæti samanlagt. Auðunn beygði 385,0 kg, setti þar með nýtt Íslandsmet og lenti í 6 sæti. Í bekkpressu lyfti hann 250 kg og lenti í 8.sæti.
Honum tóks best upp í réttstöðulyftu þar sem hann tryggði sér silfurverðlaun eftir æsispennandi lokabaráttu.
Hann lyfti 355 kg, en mistókst með 360 í síðustu tilraun. Þetta er nýtt Íslandsmet og dugði honum til silfurs í greininni.
Samanlagt lenti Auðunn í 5. sæti með 990 kg sem líka er nýtt Íslandsmet í +125,0 kg flokki.
Heimsmeistari varð bretinn Dean Bowring með 1055 kg.
Við óskum Auðun til hamingju með árangurinn sem er honum og íþróttinni til mikils sóma.
Hægt er að sjá upptökur frá HM á Indlandi HER
©Maria Gudsteinsdóttir: íslenska lidid á hm
Auðunn, María og Vigfús að loknu móti.

 

6.nóvember 2009
SÖGULEGT BIKARMÓT FRAMUNDAN
Eins og allir íþróttaáhugamenn vita eru kraftlyftingar ein örfárra keppnisgreina sem hafa staðið utan Íþrótta- og ólympíusamband Íslands fram að þessu.
Í vor ákvað ÍSÍ hins vegar að stofna kraftlyftinganefnd til að gefa keppendum tækifæri til að stunda þessa frábæru íþrótt með sömu reglum, skilyrðum og virðingu og aðrir íþróttamenn. Ekki verður annað sagt en að íþróttaæska landsins hafi gripið tækifærið, en keppendafjöldinn á síðasta Íslandsmóti sprengdi öll fyrri met.

Nú er famundan fyrsta bikarmót í umsjón nefndarinnar og að þessu sinni eru 21 (mis)ungir og áhugasamir keppendur skráðir til leiks.
KEPPENDALISTI

Mótið fer fram í íþróttahúsi Hagaskóla v. Neshaga á morgun, 7. nóvember og hefst kl. 13.00.
Vigtun er klukkan 11.00
 Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er 500 krónur.
Bein netútsending verður frá mótinu


Við óskum keppendum góðs gengis og hvetjum alla stuðningsmenn KRAFT að mæta og taka þátt í skemmtuninni.

UPPLÝSINGAR TIL KEPPENDA


3. nóvember
2009
NÝTT KRAFTLYFTINGAFÉLAG STOFNAÐ
UMF Sindri á Höfn í Hornafirði stofnaði í gær kraftlyftingadeild. Fyrsti keppandi félagsins er þegar skráður til leiks á bikarmót KRAFT nk laugardag. Við óskum Hornfirðingum til hamingju og velkomin í hópinn. Formaður deildarinnar er Sævar Guðmundsson.

 

3. nóvember 2009
MARÍA HEFUR LOKIÐ KEPPNI Á HM
Heimsmeistaramótið í kraftlyftingum stendur nú yfir í New Delhi á Indlandi. María Guðsteinsdóttir lauk í morgun keppni í - 67,5 kg flokki. Hún lauk hnébeygju með 155 kg, (8.sæti)  bekkpressu með 95 kg (7.sæti) og réttstöðu með 167,5kg (6.sæti). Samtals 417,5 kg. Hún lenti þar með í 9.sæti í flokknum. Sigurvegarinn var Galina Potselueva frá Rússlandi með 604,0 kg. Við óskum Maríu til hamingju með árangurinn og erum stolt af hennar frammístöðu. Hægt er að fylgjast með framvindu mótsins HÉR.
Auðunn Jónsson keppir í + 125,0 kg flokki á laugardaginn kl. 6.30 á íslenskum tíma.

25.oktober 2009
HNÉBEYGJUBRÆKUR ÓSKAST.
 

24.oktober 2009
LYFJANOTKUN
Listi WADA um bönnuð efni og aðferðir gildir innan ÍSÍ og geta keppendur átt von á að vera boðaðir í lyfjapróf hvar og hvenær sem er. Ef íþróttamaður þarf samkvæmt læknisráði að taka inn lyf sem eru á bannlistanum, t.d. innöndunarlyf vegna astma, verður hann að sækja um undanþágu. Undanþágueyðublöðin eru að finna á vef ÍSÍ.

6.oktober 2009
MÓTASKRÁ KRAFT 2010
Mótaskrá næsta árs er tilbúin HÉR.
 

30.september 2009
HEIMSMEISTARAMÓT ÖLDUNGA
HM öldunga stendur nú yfir í Tékklandi. Halldór Eyþórsson keppti í dag í  -82,5 kg flokki M2.Halldór lenti í fjórða sæti samanlagt og í öllum greinum með seríuna 250 - 137,5 - 237,5 = 625 kg. Með þessu setti hann íslandsmet í opnum flokki og flokki öldunga í öllu nema bekkpressu.  Stundum er sagt að fjórða sætið sé erfiðasta sætið að lenda í, og það var bitur staðreynd að Halldór jafnaði bronsþyngdina í beygjum, en missti af verðlaunum vegna líkamsþyngdar. Við óskum honum til hamingju með árangurinn og fyrir að hafa haldið merki Íslands á lofti með góða frammístöðu.
 Sigurvegari í flokknum var Klaus Valerij með 717,5 kg. 

27.september 2009
AKUREYRARMÓTIÐ Í KRAFTLYFTINGUM
Akureyrarmótið í kraftlyftingum lauk um helgina. Úrslit á heimasíðu KFA.

19.september 2009
NÝTT HEIMSMET Í BEKKPRESSU
Hildeborg Juvet Hugdal, Noregi, lyfti 200 kg í bekkpressu á Vesturevrópumótinu sem fram fór í Noregi í dag og setti þar með nýtt heimsmet í +90,0kg flokki kvenna.

Inga Björk, Hildeborg og María 

18.september 2009
WESTERN EUROPEAN CHAMPIONSHIP

Vesturevrópukeppnin stendur nú yfir í Noregi og íslensku stelpurnar kepptu í dag. Inga Björk Harðardóttir, KFA, keppti í flokki -60 kg og stóð sig með prýði á sínu fyrsta alvörumóti. Hún vandaði vel til verka og lauk keppni á tölunum 85-65-110=260 kg, en það er allt ný íslandsmet í þessum flokki. Hún vann til 4 silfurverðlauna í sínum flokki. Við óskum henni til hamingju með árangurinn. Maríu Guðsteinsdóttur, Ármanni, tókst hins vegar ekki að ljúka keppni aldrei þessu vant. Hún byrjaði afskaplega illa á fimm ógildum lyftum, en kláraði svo 102,5 kg í bekk og 167,5 kg í réttstöðu í -67,5 kg flokki. Hún tók með því brons í réttstöðu og silfur í bekkpressu. María á verk fyrir höndum, en hún keppir næst á HM á Indlandi í nóvember og hefur örugglega ekki sagt sitt síðasta. Hægt er að fylgjast með keppninni á netinu  HÉR

15.september 2009
FRÆÐSLUKVÖLD ÍSÍ
Við viljum benda félagsmönnum KRAFT á námskeið og fræðslufundi ÍSÍ sem þeim stendur til boða. Þar er margt gagnlegt og forvitnilegt í boði. Lesið hér.

10.september 2009
100 KG OG BRONSVERÐLAUN Í BEKKPRESSU
Thelma Ólafsdóttir lauk í dag keppni á HM unglinga. Hún viktaði inn 77,1 kg og keppti í -82,5 kg flokki. Hún lyfti seríuna 130 - 100 - 120 = 350 kg, en 100 kg dugði henni til bronsverðlauna í bekkpressu.  Thelma bætti þar með Íslandsmet sín í beyju og bekk, og samanlagðan árangur sinn með 32,5 kg á einu bretti. Við óskum henni til hamingju með glæsilegar bætingar. Sindikas Nadezhda frá Rússlandi sigraði í flokknum með 557,5 kg. MYNDIR

30.ágúst 2009
SKEMMTILEGT VIÐTAL VIÐ LANDSLIÐSKONUNA THELMU ÓLAFSDÓTTUR

Sunnudagsblað Moggans geymir í dag heila opnu um kraftlyftingakonuna Thelmu Ólafsdóttur, Breiðablik. Það er fagnaðarefni að fjölmiðlar veita íþróttinni okkar síaukna athygli og Thelma er frábær fulltrúi kraftlyftinga, sterk, brosandi, ákveðin og sjálfsörugg.

Thelma er á leið á HM unglinga í Brasílíu þar sem hún keppir í - 75 kg flokki 10. september.

Við óskum henni góðs gengis og munum fylgjast með framgangi hennar hér á kraft.is 


13.ágúst 2009
Tæknibréf IPF nr. 4

12.ágúst 2009
MÓTASKRÁ KRAFT
Kraftlyftingadeildir og -félög eru beðin um að senda inn lista yfir þau mót sem þau ætla að setja á mótaskrá, fyrir 15.september. Engin Íslandsmet eru staðfest á mótum nema þau hafi verið tilkynnt til stjórnar KRAFT fyrir þann tíma gry@gry.is

12.ágúst 2009
BREYTINGAR Á STJÓRN KRAFT
Sú breyting hefur orðið á stjórn KRAFT að María Guðsteinsdóttir hefur hætt störfum sem ritari og ætlar að einbeita sér að starfi sínu sem varaformaður Kraftlyftingadeildar Ármanns. Gry Ek hefur nú þegar tekið við sem ritari KRAFT og óskum við henni velfarnaðar í starfi.

25.júlí 2009
KÓPAVOGSMÓTIÐ Í BEKKPRESSU
Fyrsta mót hinnar nýstofnuðu kraftlyftingadeildar Breiðabliks fór fram í dag í íþróttahúsi Breiðabliks við Dalsmára að viðstöddu fjölmenni. Mótið fór vel fram í alla staði. Stigahæstir keppendur í karla- og kvennaflokkum urðu þau Guðmundur S. Erlingsson og María Guðsteinsdóttir. Þá hlaut Daníel Geir Einarsson frá Selfossi nafnbótina "efnilegasti keppandinn" Fjögur Íslandsmet voru sett á mótinu. Við óskum keppendum til hamingju með árangurinn og Blikurum til hamingju með vel heppnað mót.
ÚRSLIT.
MYNDIR
Fleiri myndir frá Kópavogsmótinu

24.júlí 2009
KONUR Í KRAFTLYFTINGUM
Mikil aukning hefur nú átt sér stað á iðkendafjölda kvenna í kraftlyftingum, enda nýafstaðið kvennamót sem fram fór á Akureyri. Konur í KRAFT eru hins vegar hvergi hættar og stefna margar hverjar á alþjóðamót á næstunni. Í september mun Thelma Ólafsdóttir keppa á Heimsmeistaramóti unglinga í Brasilíu og í sama mánuði fer fullmannað kvennalandslið á Vestur-Evrópu keppnina í Noregi. Er þetta fyrsta skipti í sögu íslenskra kraftlyftinga, að kvennalandslið í kraftlyftingum keppir á alþjóðamóti. Þær sem fara til Noregs að keppa eru: Inga Björk Harðardóttir, Ólöf Sigríður Magnúsdóttir og María Guðsteinsdóttir. Við munum fjalla nánar um þessi mót síðar.

24.júlí 2009
SKRÁNING ÍSLANDSMETA
Skráning er hafin á Íslandsmetum Kraftlyftinganefndar ÍSÍ, en samþykkt var á stjórnarfundi fyrr á þessu ári, að hefja nýja skráningu á Íslandsmetum, því um væri að ræða nýtt félag, sem nú er aðili að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Eldri met verða að sjálfsögðu áfram hluti af KRAFT og eru til vitnis um frábæran árangur. Þau verður hægt að finna hér á síðunni ásamt nýju metunum. Metaskráningin er afturvirk til Íslandsmótsins í kraftlyftingum, en til að fá met skráð þarf met að vera sett á móti sem er á mótaskrá KRAFT og dæmt af löggildum dómurum.
ÍSLANDSMET

21.júlí 2009
ELDRI TÍMARIT UM KRAFTLYFTINGAR
Skemmtilegt blað, sem nefnt var KRAFT blaðið, var gefið út árið 1985 til þess að kynna kraftlyftingar á Íslandi og til þess að afla fjár fyrir fyrirhugaða ferð unglingalandliðsins á EM og HM unglinga í kraftlyftingum. Nú er búið að skanna inn blaðið í heild sinni, en þar má m.a. finna viðtal við Skúla Óskarsson og Auðun Jónsson, ásamt umfjöllun um konur og kraftlyftingar. Ritstjóri blaðsins var Halldór E. Jónhildarson, núverandi ritari kraftlyftingadeildar Breiðabliks.
Kraftbladid PDF

 

 

16.júlí 2009
ÚTBÚNAÐUR Á BEKKPRESSUMÓTI
Þeim sem ætla að taka þátt í Kópavogsmótinu í bekkpressu skal bent á að þeir þurfa að vera skráðir félagar í kraftlyftingadeild/-félagi innan KRAFT. Um nauðsynlegan útbúnað má lesa í reglum KRAFT, ath að keppendur þurfa að vera í samfestingi/singlet. Ekki er leyfilegt að keppa í hjólabuxum eða stuttbuxum. Bekkpressusloppur þarf að vera samþykktur af IPF, sjá lista.
Kraftlyftingafélag Akureyrar
Massi - Kraftlyftingadeild UMFN

Kraft Mosfellsbæ - email
hjaltiar@simnet.is
Breiðablik - email
audi1050@hotmail.com
Ármann - email
styrketraener@simnet.is
Kraftlyftingadeild UMFS - email
bjarni@toppsport.is


15.júlí 2009
ÍSLENSKIR ÍÞRÓTTAMENN OFARLEGA Á HEIMSLISTA IPF
Alþjóða kraftlyftingasambandið IPF birti nýlega lista yfir bestu kraftlyftingamenn heims undanfarið ár. Ofarlega á listanum eru tveir meðlimir KRAFT. Auðunn Jónsson er 7. stigahæsti maður í 125+ kg flokki og María Guðsteinsdóttir er í 9.-10. sæti í flokki - 67,5 kg. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn, og góðs gengis í framhaldinu, en þau eru hvergi nærri hætt og stefna á bætingar á næsta stórmóti. Það er ómetanleg hvatning fyrir nýstofnaða kraftlyftinganefnd ÍSI að eiga slíka glæsilega íþróttamenn innan sinna raða. 

12.júlí 2009
"SUNNUMÓTIÐ"
Laugardaginn 11. júlí var haldið fyrsta stelpumótið í sögu kraftlyftinga á Íslandi. Á Glerártorgi gátu menn fylgst með 23 sprækum stelpum taka á því í bekkpressu og réttstöðulyftu. Umfjöllun og úrslit á heimasíðu KFA og Vöðvafíkn.net.


13.júní 2009
BRONS TIL THELMU
Thelma Ólafsdóttir (Breiðablik) stóð sig mjög vel á sínu fyrsta alþjóðamóti og náði þriðja sæti á Evrópumóti unglinga í kraftlyftingum, sem fram fer í Svíðþjóð.
Thelma færði sig upp um þyngdarflokk og keppti í 82,5 kg flokki, en árangur hennar var þessi: Hnébeygja 110,0 kg (122,5 of grunn) - Bekkpressa 85,0 kg - Réttstaða 122,5 kg - Samanlagður árangur 317,5 kg. Bætti hún sinn persónulega árangur um 15 kg í samanlögðu. Þetta tryggði henni brons fyrir hnébeygju, réttstöðu og total en fyrir bekkpressuna fékk hún silfur. Næsta mót hjá Thelmu verður svo væntanlega HM unglinga sem haldið verður í Brasilíu í september.


NÁNARI ÚRSLIT FRÁ MÓTINU

10.júní 2009
BEIN ÚTSENDING FRÁ EM UNGLINGA
Bein útsending er á netinu frá EM unglinga á þessum link:
http://qstream-live.qbrick.com/05130live_push

Einnig er hægt að fylgjast jafnóðum með úrslitum:
http://styrkelyftaren.com/Aktuellt.html

Thelma Ólafsdóttir keppir í 75,0 kg flokki föstudaginn 12. júní kl. 09:00
að íslenskum tíma. Fylgjumst með fulltrúa Íslands á mótinu.

9.júní 2009
EM UNGLINGA
Evrópumeistaramót unglinga fer fram 9.-13.júní í Jönköping í Svíðþjóð, en Íslendingar eiga einn keppanda á mótinu. Þar er á ferðinni Thelma Ólafsdóttir (Breiðablik), sem keppir í 75,0 kg flokki við fjórar aðrar sterkar konur. Búast má við persónulegum bætingum hjá Thelmu sem keppir á föstudaginn kl.11:00 að sænskum tíma. Við munum birta fréttir af árangri hennar þegar þær berast.
KEPPENDALISTI

 

27.maí 2007
KRAFTLYFTINGADEILD UMFS
Stofnfundur Kraftlyftingadeildar UMFS verður haldinn fimmtud. 28. maí kl. 20:00 í félagsheimilinu Tíbrá við Engjaveg á Selfossi. Með stofnun þessarar deildar er Kraftlyftinganefnd ÍSÍ nú með félög/deildir í 5 héraðssamböndum og vex ört. Hvetjum alla áhugasama til að mæta.

26.maí 2009
Allar lyftur frá EM 2009 eru komnar á netið => HÉR  Veljið fyrst Menu og síðan Library

25.maí 2009
SUMARÆFINGAR
Kraftlyftingarmenn fara í sumarfrí eins og aðrir, en þá gefst tækifæri til að sinna æfingum sem geta orðið útundan á keppnistímanum. Hér er að finna hugleiðingar og hugmyndir um æfingar utan keppnistímabils.

19.maí 2009
Myndir frá EM í kraftlyftingum eru komnar. Fyrri linkurinn eru myndir af íslenska liðinu, en sá seinni af öðrum keppendum.
http://klausjensen.dk/EPF09_ICELAND/
http://klausjensen.dk/EPF09


9.maí 2009
EVRÓPUMÓTINU LOKIÐ

Evrópumótinu í kraftlyftingum 2009 lauk í dag í Finnlandi. Íslensku keppendurnir, Auðunn Jónsson og María Guðsteinsdóttir, stóðu sig vel á mótinu og óskum við þeim báðum og aðstoðarmönnum þeirra, Klaus Jensen og Vigfús Kröyer, til hamingju með árangurinn og góða ferð heim.
MYNDIR
Heildarúrslit
 

 

9.maí 2009
BRONS TIL ÍSLANDS  
 

Auðunn Jónsson hefur lokið keppni á Evrópumótinu með tölurnar: 380 - 255 - 350 = 985. Hann lenti í 6. sæti samanlagt, en réttstöðulyftan dugði  honum í þriðja sætið. Við óskum honum til hamingju með árangurinn.

 

 



8.maí 2009
MARÍA HEFUR LOKIÐ KEPPNI

María Guðsteinsdóttir lauk í dag keppni á Evrópumótinu í Finnlandi.
Hún tók seríuna 172,5 - 95 - 170 = 437,5 sem er sama tótal og hún tók á Íslandsmótinu í apríl.
Þó að Maríu hafi stundum gengið betur en í dag óskum við hana til hamingju með árangurinn.
María hefur áunnið sér virðingu í alþjóðaheimi kraftlyftinga sem traustur og glæsilegur íþróttamaður sem Íslendingar geta verið stoltir af.
 

1.maí 2009
EM Í KRAFTLYFTINGUM
Evrópumótið í kraftlyftingum fer fram í Finnlandi dagana 6.-9.maí og keppa fyrir hönd Íslands, María Guðsteinsdóttir og Auðunn Jónsson.
María keppir á föstudaginn kl. 08.00 en Auðunn laugardag kl. 10.00 - íslenskir tímasetningar.
Heimasíða mótsins.

30.apríl 2009
Aukaþing Kraftlyftinganefndar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands fór fram í gær, þar sem greidd voru atkvæði um að leggja tímabundið niður Kraftlyftingasamband Íslands, þar sem öll alþjóðleg aðild er komin undir nýstofnaða Kraftlyftinganefnd. Var þetta samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Þá voru önnur mál rædd, m.a. mótahald og nýafstaðið Íslandsmót. Hefur stjórn KRAFT ákveðið að öll stærri mót verði á vegum nefndarinnar, þar til annað verður ákveðið.

22. apríl 2009
ÁRMENNINGAR ÍSLANDSMEISTARAR
Þá liggja fyrir úrslit í liðakeppni íslandsmeistaramótsins í kraftlyftingum.
Kraftlyftingadeild Ármanns varð stigahæsta liðið með 119 stig. Í öðru sæti varð Massi UMFN með 90 stig, en Breiðablik hafnaði í þriðja sætið með 56 stig. KFA hlaut 28 stig, Kraft Mosfellsbæ 12 og Kraftlyftingadeild UMFS 8 stig.
Stigahæstir einstaklingar voru María Guðsteinsdóttir - Ármanni og Auðunn Jónsson - Breiðablik.
Við óskum Ármenningum til hamingju með bikarinn og öllum verðlaunahöfum mótsins til hamingju með góðan árangur.
ÚRSLIT
MYNDIR
 

18.apríl 2009
Íþróttaþing ÍSI samþykkti í dag að stofna sérsamband um kraftlyftingar á næstu tveimur árum.
Þetta eru míkil gleðitíðindi fyrir alla unnendur íþróttarinnar.
Hér má sjá samþykktina í heild sinni.

 

11.apríl 2009
ÆFING Í BREIÐABLIK
Nokkrir Blikar, ásamt aðstoðarmönnum, mættu í dag á æfingu í Íþróttahúsi Breiðabliks. Auðunn Jónson tók sína síðustu hnébeygju- og réttstöðuæfingu fyrir Íslandsmótið ásamt Gry Ek og Pawel Lul. Þarna voru líka mættir Sæmundur Guðmundsson og Hörður Arnarson sem báðir tóku bekkinn og góða réttstöðuæfingu.
MYNDIR

9.apríl 2009
ÆFINGAR FYRIR ÍSLANDSMÓTIÐ
Lokaundirbúningur stendur nú yfir hjá keppnisfólki okkar, sem ætlar að keppa á Íslandsmeistaramótinu eða öðrum mótum á næstunni. Nokkar kraftlyftingakonur hittust í dag og tóku góða æfingu saman, undir leiðsögn Jakobs Baldurssonar. Ljósmyndarinn Klaus Jensen var á staðnum og smellti af nokkrum myndum.
MYNDIR

26.mars 2009
ÚTBÚNAÐUR FYRIR KRAFTLYFTINGAR
Mikil eftirspurn er nú eftir keppnisútbúnað hvers konar - ekki síst singlets. Þeir sem eiga notaðar græjur sem þeir vilja selja eða lána eða vantar útbúnað geta auglýst hér undir SÖLUVARNINGUR.
Sendið tölvupóst

26.mars 2009
Ármenningar stofna kraftlyftingadeild.
 

Hver stórtíðindin rekur aðra í kraftlyftingaheiminum þessa daga. Á aðalfundi Glímufélagsins Ármanns í gær, 25. mars var ákveðið að stofna kraftlyftingadeild innan félagsins. Formaður er Ingimundur Björgvinsson. Um 70 manns eru þegar skráðir í deildina og sex Ármenningar mæta til leiks á byrjendamóti KRAFT á laugardaginn. Við óskum Ármenningum til hamingju með þennan áfanga. MYNDIR
 

 

24.mars 2009
KRAFTLYFTINGANEFND ÍSÍ
Þá er Kraftlyftinganefnd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands orðin að veruleika. Við óskum öllu kraftlyftingafólki og velunnurum íþróttagreinarinnar til hamingju með áfangann. MYNDIR
Með stofnun Kraftlyftinganefndar ÍSÍ færist aðild Kraftlyftingasambands Íslands að Alþjóða Kraftlyftingasambandinu (IPF), Evrópska Kraftlyftingasambandinu (EPF) og Norræna Kraftlyftingasambandinu (NPF) yfir til Kraftlyftinganefndar ÍSÍ skv. samþykki stjórna ofangreindra alþjóðasambanda. Kraftlyftinganefnd ÍSÍ er æðsti aðili um kraftlyftingaíþróttina innan ÍSÍ.
Um þetta er einnig fjallað á heimasíðu ÍSÍ www.isi.is
Kraftlyftinganefnd ÍSÍ hefur skipað eftirtalda í stjórn Kraftlyftinganefndar ÍSÍ:
Sigurjón Pétursson, formann
Jakob Baldursson, varaformann
Birgi Viðarsson, gjaldkera
Maríu Guðsteinsdóttur, ritara
Guðjón Hafliðason, meðstjórnanda
Auðunn Jónsson, varastjórn
Sæmund Guðmundsson, varastjórn
Umfjöllun um stofnun Kraftlyftinganefndar ÍSÍ í íþróttafréttum RÚV

20.mars 2009
SKRÁNING Í FÉLÖG
Allt keppnisfólk verður nú að vera skráð í kraftlyftingafélag eða deild, innan Kraftlyftinganefndar ÍSÍ. Þau félög sem nú eru þegar stofnuð eru: Breiðablik í Kópavogi, Kraft í Mosfellsbæ, Kraftlyftingafélag Akureyrar og Massi í Njarðvík. Einnig er búið að samþykkja stofnun kraftlyftingadeildar innan Ármanns og verður sú deild stofnuð innan skamms. Keppendur verða því að skrá sig í eitthvert af fyrrgreindum félögum/deildum, áður en þeir keppa og greiða félagsgjald. Árgjald til KRAFT er hins vegar ekki innheimt lengur. Hér eru linkar á félög og deildir, þar sem hægt er að skrá sig.
Kraftlyftingafélag Akureyrar
Massi - Kraftlyftingadeild UMFN

Kraft Mosfellsbæ - email hjaltiar@simnet.is
Breiðablik - email audi1050@hotmail.com
Ármann - email
styrketraener@simnet.is
Kraftlyftingadeild UMFS - email
bjarni@toppsport.is

12.mars 2009 
LYFJAEFTIRLIT
Með stofnun Kraftlyftinganefndar innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), munu ýmsar jákvæðar breytingar fylgja í kjölfarið. Meðal annars verða öll félög undir lyfjaeftirliti, eins og allar aðrar íþróttagreinar innan ÍSÍ, sem er mjög jákvætt fyrir ímynd kraftlyftinga. Þetta þýðir það að alla félaga í kraftlyftinga-
deildum innan KRAFT má lyfjaprófa, bæði á mótum og utan móta. Í þessu samhengi viljum við sérstaklega vekja athygli á, að þeir sem þurfa að taka inn lyf á bannlista, samkvæmt læknisráði, þurfa að sækja um undanþágu fyrir því til lyfjaeftirlits ÍSÍ og KRAFT
 
Lesa nánar .....

10.feb. 2009
NÝ KRAFTLYFTINGADEILD STOFNUÐ Í KÓPAVOGI
Nú geta iðkendur og keppendur í kraftlyftingum stundað sína íþrótt innan vébanda hins öfluga íþróttafélags Breiðabliks í Kópavogi, en stofnfundur kraftlyftingadeildar Breiðabliks fór fram í gærkvöldi.
Formaður deildarinnar er Guðjón Hafliðason.
Markmið deildarinnar er iðkun og keppni í kraftlyftingum, auk almennrar styrktarþjálfunnar og æskulýðsstarfs byggt á þríþraut.
Framundan er krefjandi og spennandi vinna við að byggja upp starfið og útbúa sérhannaða aðstöðu til kraftlyftingaæfinga.
KRAFT óskar Blikurum til hamingju með nýstofnaða deild.
Stjórnin - Stofnfélagar -

 

6.jan. 2009
NÝTT KRAFTLYFTINGAFÉLAG
Á Gamlársdag fór fram stofnfundur nýs kraftlyftingafélags, K-5 í Kópavogi og mættu á fundinn 45 stofnfélagar. Félagið mun standa fyrir mótum, leiðsögn í kraftlyftingum og öðrum uppákomum. Formaður hins nýja félags er Sr. Gunnar Sigurjónsson en varaformaður er Gunnar Bragason. Nánari upplýsingar og myndir má finna => HÉR

3.des. 2008
NÝTT FÉLAG Í MOSFELLSBÆ
Nýtt kraftlyftingafélag innan KRAFT, hefur verið stofnað í Mosfellsbæ, en 20 félagar mættu á stofnfundinn. Formaður hins nýja félags er Hjalti Árnason, gjaldkeri er Halla S. Heimisdóttir en Hilmar Þ. Halldórsson gegnir stöðu ritara. Þá er einnig unnið að stofnun kraftlyftingafélags á Selfossi og gengur sú vinna vel.

1.jan. 2009
AKUREYRARMÓTIÐ Í BEKKPRESSU
Akureyrarmótinu í bekkpressu lauk í gær og var áhorfendamet slegið í Jötunheimum, þar sem mótið fór fram. Á mótinu var einnig tilkynnt hver hefði verið kosinn Kraftlyftingamaður Akureyrar, en í þetta sinn hlaut Freyr Aðalsteinsson titilinn. Nánari úrslit og umfjöllun um mótið má finna á http://www.vodvafikn.net/


 

            
Vefstjóri Gry Ek